|
|
09.01.2008 14:27:00 / Ingibjorg
Jæja þá erum við Ragnhildur búnar að búa okkur til Blogg fyrir ferðina okkar þeir sem vilja geta fylgst með okkur slóðin er www.123.is/miami08 Kv Intsíbjörts !!
»
08.01.2008 22:58:07 / Ingibjorg
Sæll og blessaður !! Hvað er að frétta ?? núna eru bara 10 dagar í miami, eða reyndar 10 daga í New York, og 12 dagar í miami !! Við Ragnhildur erum ekkert smá skipulagaðar, erum búnar að gera allt undanfarna daga, fylla út alla pappírana, og sækja um vegabréfsáritun, fengum hana í dag, ekkert smá töff Búnar að panta flug frá new york til miami og panta hótel í new york, s.s það er bara ALLT komið nema að pakka... og fara í mat til ömmu og fá kjötsúpu, hehe Það er komin smá spenningur í okkur haha erum samt ekki alveg að trúa þessu enþá. En það er ekki mikið að frétta af mér,kannski er búin að vera að vinna, og á æfingum, reyndar ekki um jólin þá bara svaf maður, og var lasin var reyndar Gyðju hittingur, soldið gaman að hitta flestar stelpurnar, en það komust samt ekki allar. Jólin mín voru bara fín, gerði ekki annað nema að sofa, borða og liggja í nýja sófanum hennar mömmu og horfa á sjónv. En ég nenni ekki að skrifa meira hérna. Við Ratshildur, ætlum svo að vera með blogg þegar við erum úti En bið að heilsa í bili KV Intsíbjörts !!
»
11.11.2007 22:25:09 / Ingibjorg
Jæja þá !! Nenni aldrei að blogga og ekki mikið að gerast !! líka alltaf það sama, skóli og vinna og hokkí .... Seinustu helgi skelltum við okkur í bústað vorum reyndar ekki mörg, en samt mjög kózy, Var að koma að norðan í nótt, vorum að keppa ... töpuðum en munaði ekki miklu hahhahahahaha 18-2 þetta var svona húmor hjá okkur....... En ég og Ragnhildur erum að fara til Miami eftir nokkra daga, það er það eina sem heldur okkur gangi þessa dagana... Erum alveg að mygla hérna í þessari yndislegri rigningu !!! Svo þegar ég kem heim þá styttist í það að "litli frændi" minn komi í heiminn, já hún Kittý mín er ólétt og ég get ekki beðið ég vil meina að þetta sé strákur, en veit samt ekkert um það. já Það sem er framundan er þessi blessaða vinna og þessi yndislegu próf !! svo bara koma jólin og MIAMI eftir það !! En ég er hætt nenni ekki að skrifa meira !! kveðja Ingibjörg # 16
»
01.10.2007 16:10:17 / Ingibjorg
LOKSINS !!! við erum búnar að bóka okkur í skólann á Miami .... Ég trúi þessu ekki !! jibbý vildi bara láta ykkur vita hahhaha !! En er farin að læra bæbæ! 

Þetta er víst skólinn 
»
06.09.2007 18:52:48 / Ingibjorg
jæja þá fer þessi blessaða eyjafærsla að verða úrelt !! hehe nóg búið að gerast síðan ..... Gaypride.....það var geggjað töff !! Svo var Menninganótt og Vigga litla kom til mín og var hjá mér í viku, ég og flosrún og vigga kíktum á gaukinn á á móti sól, algjört stuð, Agga var nátturulega að vinna Svo voru nú blómstrandi dagar, kíkti nú bara edrú nennti ekki einu sinni á ball hehe Flugeldasýningin var geggjuð  skólin nátturulega byrjaður og ég verð bara að segja að það er bara gaman að vera í skóla, þótt að maður sé alltaf blankur, hehe en svona er þetta bara. Hokkíið er byrjað á fullu og harðsperrurnar eru mjög spennandi, ég er komin í nýja vinnu jæja ég er hætt og farin að gera eitthvað Hanna nú hefuru eitthvað að gera elskan hhehe LATER !!
»
09.08.2007 14:58:19 / Ingibjorg
Já þjóðhátíð var SNILLD !!!
Komum á föstudeginum, það var reyndar ekkert spes veður leit út
fyrir rigningu .. og jú það kom einn skúr !! svo bara fór að koma
gott veður og stóðst það allahelgina samt soldið rok en hvað með
það .
Mér tókstað fara ekkert inn í bæ, nema á föstudagskvöldinu og
sunnudeginum að taka á móti nýja vini mínum, Herjólfi. haha
Vorum í sólbaði allan laugardaginn frá kl 9 um morgunin ég ákvað
baraað sofa úti, í öllum fötunum .... Það er hægt að segja að það
rann ekki af neinum alla helgina nema kannski Svandísi haha hún er
ólétt þess vegna varð hún ekkert full !!
Tókum fullt af skemmtilegum myndum, nenni samt varla að setja
þær inn á netið... kannski seinna
Sunnudagurinn var ekkert verri gott veður og skemmtilegt Anna
Sigga er alltaf svo góð við mig og greiðir mér alltaf annars væri
ég bara eins og úfin hæna. Ég Halli og Svavar fórumsvo og tókum á
móti Sollu og Stebba.... Solla kom til að passa mig hahaha það þarf
einhver að gera það 
SVo bara var allt búið og bjórinn líka ....
Komin heim prófin byrjuð og auðvita
HOKKÍIÐ líka VVVÁÁÁÁ það var svo gaman að fara á
æfingu aftur, núna verður bara engin bjór bara skautar og æfingar

en ætla að halda áfram að læra ensku hobbitin kallar !!
bæbææbæb




»
31.07.2007 18:07:34 / Ingibjorg
Ég lofa að gera það sem á mínu valdi stendur til þess að gera
skildu mína við guð og ættjörðina, hjálpa öðrum og halda skátalögin
!!!
já ég er skáti og er stolt af því !! það á að endurnýja
skátaheitið á morgun en ég kemst ekki í
þá athöfn þannig ég bara kem með það hér og nú !! ( varð bara
að herma eftir kittý )
sjáumst !!
»
24.06.2007 22:59:36 / Ingibjorg
HÆ
ég nenni ekkert að vera skrifa hérna það kommentar enginn !!
en samt ég fór á bíladaga seinustu helgi og það var GEÐVEIKT
¨!!!!! BESTU bíladaga ever !!
ég og Helga fórum á fimmtudeginum og agga og geiri ætluðu ekki
að koma fyrr en á föstudeginum en jújú þau komu okkur á
óvart. Ég og helga duttum bara í það um leið og við komum,
hittum viggu fórum í eitthva partý með henni ...´Föstudagurinn
byrjaði á sundi og svo bjór mjög gott Ragnhildur kom um
kvöldið kíktí í partý á strákana og fórum svo upp á tjaldsvæði
og vorum þar til að verða 6 þar var stappað af fólki ekkert smá
gaman...
Ég og Ragnhildur tókum vel á því á laugard ég var svo þunn að ég
byrjaði bara í bjórnum um hálf 2 það var líka svo geggjað veður
!!
sátum á kaffi amor allan daginn að sötra, ég Agga, Helga, Vigga,
Ragnhildur, Danni, Mimir og Gunni. Svo var götuspyrnan.
Gudda frænka var svo á akureyri og kíktum við ragnhildur á hana
í partý... endaði á djamminu með frænku, tókst að komast á slysó
..."ungfrú óheppin" alltaf á staðnum kom heim um kl 10 um morguninn
hehe
ÞEtta var snilldar helgi og hlakka til að taka aðra svona

En þessi var nú bara róleg var bara upp í bústað með mömmu og co
mjög gott að slaka aðeins á einu sinni. Sofnaði bara út á palli í
dag það var svo gott veður 
Svo eru bara nokkrir dagar í írska daga og þá verður tekið illa
á því !! en maður verður samt að fara að hætta þessu djammi og fara
að æfa að alvöru, ef maður ætlar sér að halda sér í landsliðinu
!!
en ég er farin að sofa góða nótt
kv Miss Unlucky !!!
»
07.06.2007 19:14:36 / Ingibjorg
Sælt verið fólkið !!!
já ég hef nú ekkert verið að skrifa neitt hérna .... held að
engin sakni þín hvort eð er !! hahahahahaha
Það er búið að vera hellingur að gerast hjá mér seinustu vikur
!!
Kláraði prófin í mai náði öllu nema einu, bjost nú alveg við að
falla sko... ....
Svo var lokahófið í hokkíinu mættu nú ekki margir, en samt
gaman, við stelpurnar hittumst hjá Sillu og fórum í singstar... mér
tókst að tapa fyrir öllum hahaha eða hönnu, karitas og öggu.
Stóri bróðir minn útskrifaðist sem þjónn hvítasunnuhelgina, og
ætlaði ég nú ekki að djamma þá ... en jú auðvitað, svaf í klst og
skelltum okkur svo á klaustur á krossarakeppnina. var vöknum 6:15
haha lögðum af stað kl 8 héldum sko að við mundum missa af startinu
greiið Agga var að verða vitlaus á okkur, jújú við náðum því vorum
meira að segja komin meira en klst fyrir, svo var það bara
endurtekið ... Bjór var aðaláhugamálið okkar öggu þessa helgina því
það var ekki gert mikið nema að drekka hann og vera í
skólbaði. híhíh
Seinustu helgi skelltum við okkur til Grindavíkur til að hitta
sjóarann síkáta...
Gistum hjá Guddu frænku og Sibba ,fengum að gista í kofanum,
ekkert smá kósý... fórum á lukkuláka á föstudeginum og á laugard
fórum við á Á móti sól ball, það var geggjað gaman!!
það má segja að sumarið byrjar mjög vel allavegana er ég ekki
búin að vera fyrirvonbrigðum, seinasta sumar var PRUMP miðað við
þetta haha eða allavegana það sem er búið af þessu.
Ég er að reyna að draga mömmu gömlu með til Spánar en hún er
ekki viss, mig langar svo að fara í viku í solina, samt er vika
alltof stutt en samt svo gott að komast í burtu 
En elskurnar farin að gera eitthvað af mér eins og alltaf !!
bæbæ ingibjörg aka K-ingibjörg
»
02.05.2007 23:23:55 / Ingibjorg
Já það er að koma sumar.... nema ekki alveg strax fyrst
verð ég að klára prófin.... fer í 5 í næstu viku, já á5 dögum.....
ég er samt að reyna að læra núna, ætti kannski að vera af því
núna?? Æi smá pása.
Fór á æfingu í kvöld, ég er bara ekki að trúa að þetta sé að
vera búið í smá tíma pása í 3 mánuði, það er soldið mikið, en samt
gott að komast í frí en þá verður maður bara að vera dulega að
hlaupa í staðin og halda þolinu.....
Um seinustu helgi helt hún Hildur upp á afmælið sitt það var
heljarinnar partý, fóru síðan í bæinn æi það var nú ekki eins
skemmtilegt ég og Birgitta vorum bara þreyttar og fórum snemma
heim, Hanna kom líka með okkur. Ég er búin að vera ansi dugleg í
djamminu undan farið miðað við hvernig ég var fyrir jól,held að
Kanarí hafi alveg farið með þetta.
Mig langar svo aftur til kanarí næstu jól og er ég mikið að spá
í að fara, er að reyna að draga pabba gamla með, nenni ekki að
hangsa hérna í kuldanum, miklu betra að vera í sólbaði á jóladag,
og geta farið í búðir, á gamlársdag um 6 leitið hehe
en ég ætti kannski að fara að læra núna
góða nótt
Kv Ingibjörg
»
23.04.2007 22:39:49 / Ingibjorg
Já það er komið sumar loksins!!!
var að koma heim af æfingu, trúi ekki að þetta sé að verða búið
og sumarið að koma og engar æfingar !! ok gott að sumarið sé að
koma !!
Áttum að fara norður um helgina, en komumst ekki... bömmer
!! já það er líka komið alveg nóg af þessum ferðum norður 6
sinnum fram og til baka.... vonandi verður þetta betur skipulagt
næsta vetur !! ekki bara á akureyri , þá meina ég með
landsliðið. Enda er þetta líka orðið soldið dýrt, þegar maður er í
skóla og svo erum við ekki einu sinni á mörgun æfingum, þegar við
hefðum geta fengið meiri ístíma í reykjavíkinni, en það hafði nú
verið gaman að spila, SA píurnar hefði bara átt að kíkja í
reykjavík eins og þær buðust til úti í rúmeníu en hlakka til á
næsta tímabili 
En nóg um það kíkti í Grindavík á laugard á ball með hommanum og
klínkinu Birgitta var vakin á mjög skemmtilegan hátt, Gudda
frænka vildi samt ekki leyfa Sibba að vekja hana með vatni, þannig
við skelltum bara einum 35 ára upp í rúm til hennar heheh !! bara
fyndið !!
Svo eru að byrja próf eftir innan við 2 vikur ég fer í 5
próf á 5 dögum... ég verð á haus, og mjög lengi að læra þannig ég
ætti kannski aðf að fara að byrja !!
En jæja ætla að fara að horfa á OC Góða nótt babís!!
ingibjörg # 16
»
06.04.2007 20:02:54 / Ingibjorg
Já ég er komin !!
komum seinasta mánudag þetta var geðveik ferð ...
ferðin út gekk mjög vel þó að hún hafi verið löng þá var hún
líka mjög skemmtileg, það var brjálað partý hjá okkur í rútunni á
leiðinni upp á hótel haha dansað og sungið mikið ...
fyrsti dagurinn var tekin rólega, fórum á æfingu og
skoðuðum okkur um. allt mjög öðruvísi þarna
fórum á æfingu alladaga samt bara léttar æfingar, ekkert alltaf
í göllum. á miðvikudeginum fór helmingurinn af liðinu að skoða
kastaladrakúlagreifa, ég nennti ekki en sé samt soldið eftir því...
við hinar fórum bara á röltið að "versla" og skoða bæinn ... það
var ekket hægt að versla þarna nema kannski nærföt sem kosta
nákvæmlega ekki neitt brækur á 120 kr og nærfatasett á 600 kr ca
það var kostar ekkert að lifa þarna út ...
pitsa og bjór 300 kr .......... sem sagt allt mun ódýrar og
væntanlega launin líka. Þetta er samt land sem ég myndi ALDREI
flytja til !!
Kom heim á mánud lögðum af stað á sunnudagskvöld kl 11 og lenti
í keflavík 4 á mánud ... það sat krakki fyrir aftan mig og
Hönnu á leiðinni frá parís til ísl og hann gargaði ALLA leiðini við
erum sko ekki að tala um lítið barn sem grætur heldur 4 eða 5 ára
gamalt barn sem var að deyja úr frekju !!
Taskan mín ákvað að vera eftir í parís ég var að fá hana áðan
jibbý loksins !!
sjampóið mitt sprungið og svona skemmtileg heit !!
en það er bara chill kvöld framundan sigga ætlar að kíkja í
heimsókn, svo bara vinna í fyrramálið ...
en allavegana erum að fara að keppa við útlenst lið á
fimmtudaginn ... var að frétta það áðan, maður er ekki búin að fara
á skauta í næstum viku, og það eru alveg 5 dagar í næstu æfingu
en allavegana
GLEÐILEGA PÁSKA allir ekki borða of mikið af eggjum !!
kv Ingibjörg # 21
»
26.03.2007 19:26:45 / Ingibjorg
hæhæ !!
ég er komin til rúmeníu !! vá hvað er skrítið að koma hingað!
það var langt ferðalag en samt mjög skemmtilegt .... komum um 6 í
keflavík og flugum þaðan til parísar og síðan til búkarest síðan
tók við rútuferð í 5 tíma ......
tímamismunurinn var 2 tímar þegar við komum en á miðnætti
breyttist í 3 tíma !!
í gær fengum við frídag og slökuðum á og fórum á æfingu ...
mér tókst að fá kvef og hálsbólgu 
Spiluðum við nýja sjáland í dag og leikurinn fór 10-0 fyrir þeim
!!! úps...
en það er rúmenía á morgun og stefnum á sigur en er farin í
rúmið ...góða nótt
góða nótt
mongólíti #21
p.s. hérna er allt um okkur og meira hérna
»
14.03.2007 01:46:58 / Ingibjorg
Já ég sit hérna heima hjá Birgittu og klukkar er hálf 2 og ég er
enþá vakandi... ég er að læra stærðfræði, og það gengur bara
ágætlega ... mér finnst bara stæ orðið skemmtilegasta fagið í
skólanum núna haha. Ég er að fara í próf á fimmtudagin og verður
maður að læra núna, það eru fleiri próf í þessari viku.
Já ég þarf að fara í próf á föstudagin en þá er ég líka að fara
norður.. verð bara að fara fyrst í prófið, og svo beint norður
ekkert voðalega spennandi, en svona er að vera í landsliðinu hehe

Kepptum seinustu helgi 2 leiki þeir fóru jú eins og allir hinir
leikirnir töpuðum en ekkert með miklum mun, það var samt mjög
skemmtilegt, alltaf gaman að spila hokkí ...
Svo er bara vika og 3 dagar í brottför ... Rúmenía hljómar
ekkert of vel, en það er gaman að fara til landa sem maður á
örugglega aldrei eftir að fara til .....
Svo er bara spurning hvað á ég að gera í sumar ??
langar að fara út að vinna, langar líka að fara á þjóðhátíð, og
allt það skemmtilega sem er að gerast í ísl í sumar, en jú ... hvað
á maður að gera?? þetta er stór spurning sem ég ætla að finna út
næstu daga 
Bíllin minn dó um daginn og núna á ég bara engan bíl hehe
druslur þessir gömlu bílar.. og núna er ég að velta fyrir mér
hvernig bíl ég að að kaupa og hvort ég eigi að kaupa mér bíl ? eða
á ég bara að fara út ?
en allavegana ég ætti kannski að fara að sofa ? og láta mig
dreyma um eitthvað skemmtlegt!!
allavegan í bili bæbæ og góða nótt
mongó # 16
»
27.02.2007 12:25:43 / Ingibjorg
Já það styttist alltaf meira og meira í þessa blessuðu ferð ...
já ég er að fara til Rúmeníu, að keppa 24 mars, ég komst í
landsliðið JIBBÝ.... verðum í 9 daga í burtu, Hlakka ekkert smá til
....
crew-ið fer næstum allt, vantar bara hana Sollu ... Það er
nóg að gersast framundan ...Leikur og æfingabúðir !!! Tíminn á
eftir að líða hratt þangað til, sumarið verður komið áður en maður
veit af  ætli maður reyni ekki að skella sér í einhverja
útilegu í sumar, ef maður verður ekki bara að vinna.... það er ekki
ódýrt að æfa hokkí !
En já Seinasta helgi var nú bara tekin rólega, rúntur og vinna
og aflsöppun.... Með Birgittu, sem er örugglega núna í leifstöð á
leið til Kanarí, ohh ég öfunda hana geðveikt, væri til í að vera að
fara út í sólina,það eru reyndar 2 mánuðir síðan ég kom heim.....
Er sko að reyna að plata mömmu með mér út í sumar, henni langar,
væri fínt að fara bara 2 að slaka á í solbað og drekka Öl !!
En ég er farin út !!
Kv Ingibjörg - sem´fer út eftir 3 vikur og 4 daga !!!
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
Dagsetning
9. febrúar 2012
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 9 janúar
|